Heimildatenglar
Almanak Háskóla Íslands
Almanak Háskóla Íslands er gefið út árlega og vefur almanaksins geymir margan fróðleiksmolann.
Doktorsritgerðaskrá
Doktorsritgerðaskrá Landsbókasafns-Háksólabókasafns.
Gegnir
Gegnir er bókasafnskerfi sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna.
Handritavefur
Handrit.is veitir aðgang að sögulegum handritum sem ná hundruð ára aftur í tímann. Vefurinn er í þróun og verður upplýsingum og myndum aukið við hann næstu árin. Vefurinn er samskrá yfir íslensk og norræn handrit varðveitt í handritadeild Landsbókasafns-Háskólabókasafns, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Árnasafni í Kaupmannahöfn.
Mannlíf og kreppur
Fjölbreyttir myndbandafyrirlestrar um ýmsar hliðar mannlífs og kreppu.
Orðabók Háskóla Íslands
Orðabók Háskóla Íslands er vísindaleg orðfræðistofnun.
Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands
Rannsóknaþjónustan er þjónustustofnun fyrir íslenskt þekkingarsamfélag sem aðstoðar við öflun styrkja til þekkingaröflunar, greiðir fyrir hagnýtingu þekkingar og styrkir getu einstaklinga og samfélagsins til að takast á við verkefni morgundagsins.
Skemman
Skemman er rafrænt gagnasafn Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Bifröst, Háskólans í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands, Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og Listaháskóla Íslands. Í safninu eru einkum geymd lokaverkefni nemenda en einnig rannsóknarrit kennara og fræðimanna.
Stjórnmál og stjórnsýsla
Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla kemur út tvisvar á ári, í júní og desember. Það er gefið út af Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, sem er rannsóknar- og þjónustustofnun stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands og hennar samstarfsaðila og starfar sem sjálfstæður aðili í tengslum við Félagsvísindastofnun HÍ.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag og heyrir undir menntamálaráðherra. Hlutverk hennar er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum, einkum á sviði íslenskrar tungu og bókmennta, miðla þekkingu á þeim fræðum og varðveita og efla þau söfn sem stofnuninni eru falin eða hún á.
Vestur-norræn tímarit
Tímarit.is er stafrænt safn sem veitir aðgang að milljónum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Aðgangur er öllum opinn.
