Markmið
Þjóðskjalasafn er stærsta safn frumheimilda í sögu íslensku þjóðarinnar og þróun byggðar og mannlífs í landinu og er þess vegna sá grunnur sem rannsóknir, stjórnsýsla og mannréttindi hér á landi byggja á. Þjóðskjalasafn er skjalasafn allrar þjóðarinnar og hefur almenningur aðgang að safninu, bæði í afgreiðslu þess og á lestrarsal. Markmið safnsins miðast við lögbundið hlutverk þess og falla undir þrjú meginsvið:
- Skjalavörslu (varðveislu og forvörslu).
- Aðgengi, þjónustu og rannsóknir.
- Fræðslu og miðlun.
Með hliðsjón af ofangreindum markmiðum felst starfsemi Þjóðskjalasafns í meginatriðum í eftirfarandi atriðum:
- Að tryggja örugga varðveislu skjala, hvort sem um er að ræða skinn, pappír, rafræn skjöl, eða annars konar gögn.
- Að veita aðgang að skjölum í vörslu safnsins, hvort sem þess er óskað af persónulegum ástæðum eða í fræðilegum tilgangi, og tryggja með því réttindi einstaklinganna og stuðla að fræðilegum rannsóknum á sögu þjóðarinnar.
- Að gera skjöl í vörslu safnsins aðgengileg almenningi og fræðimönnum með faglegri skráningu skjalasafna og með því að gera skrár yfir skjalasöfn í vörslu safnsins aðgengilegar, bæði á lestrarsal og á vefsíðu safnsins.
- Að setja reglur og veita leiðbeiningar og ráðgjöf um skjalavörslu, m.a. með gerð og útgáfu handbóka og leiðbeiningarrita á prenti og á vefsíðu safnsins.
- Að halda námskeið um skjalavörslu.
- Að hafa eftirlit með skjalavörslu hins opinbera.
- Að sinna fræðilegum rannsóknum á sviði skjalfræði og sagnfræði, eða í þágu sértækra verkefna í þeim tilvikum sem óskað er eftir slíkri þjónustu safnsins.
- Að miðla völdum heimildum og þáttum í menningararfi þjóðarinnar sem safnið varðveitir, í prentuðum útgáfum eða á vefnum.
- Að taka þátt í norrænni og alþjóðlegri samvinnu svo jafnan sé miðað við nýjustu þekkingu á fræðasviði safnsins.
Mörg þessi atriði eru uppfyllt í daglegu starfi á Þjóðskjalasafni en sum eru langtímamarkmið sem unnið er við að undarbúa og þróa með það í huga að þau verði virkur þáttur í starfsemi safnsins innan lengri eða skemmri tíma. Hafa ýmsir áfangar í settum markmiðum safnsins náðst á árunum 2006 til 2008 en aðrir eru í undirbúningi eða munu frestast um óákveðinn tíma þar sem þeir eru háðir fjárveitingum til safnsins; möguleikum þess til að ráða sérhæft starfsfólk, kaupa tækjabúnað og laga húsnæði safnsins að þörfum starfseminnar í nútíð og framtíð.
