Námskeið
Þjóðskjalasafn Íslands stendur fyrir reglulegum námskeiðum um skjalavörslu hjá opinberum aðilum, annars vegar fyrir stofnanir og embætti ríkisins og hins vegar fyrir sveitarfélög og stofnanir þeirra sem ekki eru aðilar að héraðsskjalasafni.
Helstu nýmæli eru þau að haustið 2011 verða sérstök námskeið fyrir sveitarfélög sem eru afhendingarskyld til Þjóðskjalasafns Íslands úti á landi. Einnig hefur verið bætt við námskeiðum um gerð skjalavistunaráætlunar og hvernig skil á vörsluútgáfu rafrænna gagna fer fram. Almennt námskeið um skjalavörslu verður haldið núna á einum degi, en ekki skipt yfir á tvo daga eins og venjan hefur verið. Námskeið um gerð tilkynninga fyrir rafræn gagnakerfi hefur verið breytt og verður lengra að þessu sinni. Námskeið um málalykla og frágang og skráningu pappírsskjalasafna er haldið í óbreyttri mynd.
Alls verða kennd 17 námskeið veturinn 2011-2012 og er hér fyrir neðan að finna nánari upplýsingar um námskeiðin, skráningu og námskeiðsgjald.
Almenn námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum
Á námskeiðunum er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu opinberra stofnana.
Sértæk námskeið um helstu þætti í skjalavörslu
Á námskeiðunum er farið yfir reglur Þjóðskjalasafns og fjallað með raunhæfum dæmum um gerð málalykla, frágang og skráningu pappírsskjalasafna og um átak í skjalavörslu og gerð skjalavistunaráætlunar.
Námskeið um skjalavörslu fyrir sveitarfélög á starfssvæði Þjóðskjalasafns Íslands
Á námskeiðunum er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu sveitarfélaga og stofnana þeirra. Sérstaklega verður farið yfir frágang og skráningu skjalasafna og gerð málalykils.
Námskeið um rafræna skjalavörslu
Á námskeiðunum er annars vegar farið yfir tilkynningu og rafrænum gagnakerfum til Þjóðskjalasafns Íslands og hins vegar um gerð vörsluútgáfu rafrænna gagna.
