Námskeið um skjalavörslu fyrir ríkisstofnanir á Norðurlandi, Akureyri
Dags:
6. september 2012 - 9:15 - 12:15
Um viðburðinn:
| Heiti námskeiðs | Námskeið um skjalavörslu fyrir ríkisstofnanir á Norðurlandi |
| Leiðbeinendur | Helga Jóna Eiríksdóttir, Elín S. Kristinsdóttir |
| Dagsetning | 6. september 2012 |
| Tími | 09:15-12:15 |
| Staðsetning | Háskólanum á Akureyri, stofu L202 |
| Fjöldi | 15 |
| Námskeiðsgjald | 7.200 kr |
| Fyrir hverja |
Skjalastjóra, umsjónarmenn skjalasafna og aðra starfsmenn skjalavörslu hjá ríkisstofnunum á Norðurlandi. Námskeiðið er sérstaklega fyrir þá starfsmenn sem sjá um frágang og skráningu skjalasafna til afhendingar til ÞÍ og starfsmenn sem vinna að gerð málalykils. |
| Námskeiðslýsing |
Á námskeiðinu er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til þeirra. Sérstaklega verður farið yfir frágang og skráningu skjalasafna og gerð málalykils. |
| Lesefni |
Lesefni eru reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns íslands og er aðgengilegt á vef safnsins: Glærur fyrir námskeiðið verða sendar með tölvupósti til þátttakenda skömmu áður en námskeið hefst. |
| Skráning | Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið. |
