Nýjustu tíðindi
-
2013-03-25 11:35Síðasta námskeiði vetrarins lokið
Þann 19. mars sl. lauk síðasta námskeiði Þjóðskjalasafns um skjalavörslu á þessum vetri. Þetta er fjórði veturinn sem Þjóðskjalasafn býður upp á regluleg námskeið í skjalavörslu og eru námskeiðin orðin fastur liður í öflugu fræðslustarfi safnsins.
-
2013-02-11 10:36Lífleg safnanótt í Þjóðskjalasafni
Safnanótt Þjóðskjalasafns síðastliðið föstudagskvöld gekk mjög vel. Benedikt Eyþórsson sagnfræðingur og skjalavörður og Guðný Hallgrímsdóttir doktorsnemi í sagnfræði fluttu erindi fyrir fullum sal. Áhugasamir gestir skoðuðu sýningu á skjölum tengdum erindunum, notuðu tækifærið til eigin ættfræðirannsókna og þáðu kynnisferð í skjalageymslur safnsins.
-
2013-02-07 11:37Safnanótt 2013 í Þjóðskjalasafni
Á Safnanótt, 8. febrúar 2013, verður dagskrá í Þjóðskjalasafni Íslands, Laugavegi 162, Reykjavík. Boðið verður upp á kynningu á Þjóðskjalasafni og skoðunarferð í skjalageymslur safnsins. Einnig gefst gestum kostur á að hlýða á erindi Benedikts Eyþórssonar sagnfræðings um Sólborgarmálið og erindi Guðnýjar Hallgrímsdóttur doktorsnemi í sagnfræði um Kokkastúlku og kærustu í kaupstað. Hægt er að skoða skjalasýningu, taka þátt í verðlaunagetraun og kíkja í ættfræðiheimildir með aðstoð sérfræðinga safnsins.
-
2013-01-25 14:35APEx - evrópsk skjalagátt
Þjóðskjalasafn hefur undanfarna mánuði verið þátttakandi í samevrópsku verkefni sem nefnist APEx (The Archives Portal Europe network of exellence). Markmið verkefnisins er að þróa skjalagátt þar sem finna má upplýsingar um safnkost evrópskra skjalasafna.
