Reglur og leiðbeiningar
Þjóðskjalasafn Íslands hefur það hlutverk að setja reglur um skjalavörslu allra afhendingarskyldra aðila, bæði ríkis og sveitarfélaga, sbr. 3. tl. 4. gr. laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands. Þá hefur Þjóðskjalasafn Íslands lögum samkvæmt upplýsingahlutverk gagnvart framangreindum aðilum á sviði skjalavörslu, sbr. 4. gr. sömu laga, og hefur safnið gefið út leiðbeiningar um skjalavörslu og staðið fyrir námskeiðum. Reglur þær sem safnið hefur sett og leiðbeiningar sem gefnar hafa verið út eru mikilvægur þáttur í þessu hlutverki stofnunarinnar.
Reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands eru annars vegar miðaðar að ríkinu og hins vegar að sveitarfélögum.
Stofnanir og embætti ríkisins, sem og fyrirtæki í eigu ríkisins, finna hér allar reglur, leiðbeiningar og eyðublöð er varða skjalavörslu þeirra.
