Sóknarmannatöl
Þjóðskjalasafn Íslands hyggst opna leitarbæran gagnagrunn með myndum af sóknarmannatölum strax á næsta ári (2012). Skráning upplýsinga úr sóknarmannatölum hófst síðla árs 2009 og var haldið áfram á árunum 2010 og 2011, nokkra mánuði hvort ár. Þessi skráning hefur aðallega farið fram á ýmsum stöðum úti á landi. Ætlunin er að birta þessi sóknarmanntöl á vef Þjóðskjalasafns Íslands og er þá gert ráð fyrir að þar verði hægt að leita í skráðum upplýsingum og síðan verði tengingar úr niðurstöðu leitarinnar í myndir af viðkomandi bókarsíðum og þar verði unnt að skoða allar upplýsingar sem færðar voru til bókar á sínum tíma.
Byrjað var að skrá sóknarmannatöl í Norður-Múlaprófastsdæmi og síðan í Suður-Múlaprófastsdæmi. Þegar hafa verið skráðar um 500 þúsund færslur.
