Sértæk námskeið um helstu þætti í skjalavörslu
Á námskeiðunum er farið yfir reglur Þjóðskjalasafns og fjallað með raunhæfum dæmum um gerð málalykla, frágang og skráningu pappírsskjalasafna og um átak í skjalavörslu, gerð skjalavistunaráætlunar og grisjun.
Námskeið um gerð málalykla
Á námskeiðinu er farið yfir reglur um málalykla afhendingarskyldra aðila, gerð málalykla og unnin raunhæf verkefni.
Námskeiðið verður kennt:
Námskeið um frágang og skráningu pappírsskjalasafna
Á námskeiðinu verður farið yfir reglur Þjóðskjalasafns Íslands um frágang og skráningu pappírsskjalasafna og leiðbeiningar. Leiðbeint um gerð geymsluskrár og umbúðir sem skal nota undir skjöl.
Námskeiðið verður kennt:
Námskeið um átak í skjalavörslu, gerð skjalavistunaráætlunar og grisjun
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig má standa að því að gera átak í að bæta skjalavörslu í stofnunum, hvar á að byrja og hvaða þætti ætti að leggja áherslu á. Þá verður farið yfir gerð skjalavistunaráætlunar og er gerð sú krafa að þátttakendur hafi hafist handa við gerð skjalavistunaráætlunar og hafi með sér raunhæft dæmi. Í síðari hlutanum verður farið yfir heimildir til grisjunar.
Námskeiðið verður kennt:
