Þjóðskjalasafn Íslands 130 ára
Stofnun Þjóðskjalasafns Íslands miðast við auglýsingu Hilmars Finsen landshöfðingja sem var gefin út 3. apríl 1882 og birt í Stjórnartíðindum það ár. Þjóðskjalasafn minnist afmælisins með ýmsum hætti á afmælisárinu.
Dagskrá afmælishátíðar í Þjóðskjalasafni 3. apríl 2012
Afmælishátíðin fer fram í húskynnum Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162 í Reykjavík þriðjudaginn 3. apríl 2012 kl 13:00-17:00.
- Eiríkur G. Guðmundsson settur þjóðskjalavörður flytur ávarp.
- Katrín Jakobsdóttir mennta- ogmenningarmálaráðherra flytur ávarp og opnar nýjan vef.
- Skjalaverðirnir Benedikt Eyþórsson, Gunnar Örn Hannesson, Helga Jóna Eiríksdóttir og Jón Torfason segja frá starfsemi Þjóðskjalasafns.
- Guðni Th. Jóhannesson forseti Sögufélags afhendir skjöl félagsins til varðveislu í Þjóðskjalasafni.
- Tónlistaratriði.
- Sýning á völdum skjölum frá 12. öld til 20. aldar.
- Léttar veitingar.
Viðburðir á afmælisári
Í tilefni af 130 ára afmæli Þjóðskjalasafns Íslands verður eftirfarandi gert á afmælisárinu:
- Afmælisboð 3. apríl milli kl. 15 og 17 fyrir boðsgesti, starfsmenn og fjölmiðla.
- Opið hús fyrir almenning. Nánar auglýst síðar.
- Vefur um heimildir vegna rannsókna Þjóðlendumála opnaður.
- Skjalasýning á lestrarsal í aprílmánuði er lýtur að sögu Þjóðskjalasafns.
- Nýr kynningarbæklingur verður gefin út.
- Ritið Preserving archives gefið út í íslenskri þýðingu.
- Bók með úrvali greina eftir starfsmenn Þjóðskjalasafns og fleiri kemur út á árinu.
- Á haustdögum verður haldið hálfsdags málþing um hlutverk, starfsemi og þjónustu Þjóðskjalasafns Íslands.
- Prentuð verður sérstök útgáfa af bréfi Ögmundar biskups Pálssonar frá 1541, næst elsta pappírsskjals sem varðveitt er í Þjóðskjalasafni.
Efni fyrir fjölmiðla
Myndir, hægrismellið á smámyndirnar til að sækja stærri eintök.






