Donald Trump, varðveisla og aðgengi að opinberum skjölum

föstudagur, 5. apríl 2024 - 9:30
  • Donald Trump.  ASSOCIATED PRESS – Frank Franklin II
    Donald Trump. ASSOCIATED PRESS – Frank Franklin II

Enn berast fréttir af dómsmálum Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Nú hefur dómari í Florida hafnað frávísunarbeiðni Trumps um mál gegn honum þar sem Trump er gefið að sök að hafa tekið heim til sín trúnaðargögn úr Hvíta húsinu í embættistíð sinni.

Í nýjasta þætti hlaðvarps Þjóðskjalasafns, Til skjalanna, ræðir Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands um rannsóknir bandarísku alríkislögreglunnar og kærur á hendur Donald Trump vegna opinberra skjala sem fundust á heimili hans. Í því samhengi ræða þau um hvaða reglur gilda um opinber gögn á Íslandi.

Til skjalanna – hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands – Heimildir