Skip to Content

Nýjustu tíðindi

  • 2013-05-07 10:43
    Nordisk Arkivnyt er komið út
    Nordisk Arkivnyt

    Út er komið fyrsta tölublað Nordisk Arkivnyt á þessu ári. Í blaðinu er m.a. umfjöllun um átaksverkefni Félags héraðsskjalavarða á Íslandi og  Íþrótta- og ólympíusambands Íslands um söfnun íþróttaskjala, gildistöku nýrra upplýsingalaga á Íslandi og sagt frá skipun nýs þjóðskjalavarðar. Einnig eru í blaðinu fréttir og frásagnir af starfsemi skjalasafna á öllum Norðurlöndunum.

  • 2013-04-24 11:20
    Nýr sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni
    Brynja Björk Birgisdóttir

    Brynja Björk Birgisdóttir hefur verið ráðin til starfa sem sviðsstjóri upplýsingasviðs Þjóðskjalasafns Íslands.






  • 2013-04-15 14:52
    Fundur með héraðsskjalavörðum
    Þjóðskjalasafn Íslands - fréttamynd

    Föstudaginn 12. apríl fór fram í Þjóðskjalasafni fundur stjórnenda Þjóðskjalasafns og héraðsskjalavarða landsins. Fundurinn var vel sóttur en alls sóttu fundinn 15 héraðsskjalaverðir eða fulltrúar þeirra.


  • 2013-04-09 15:49
    Viðhorfskönnun um námskeið Þjóðskjalasafns – taktu þátt
    Nærmynd af gömlum bókarblöðum

    Þjóðskjalasafn Íslands hefur undanfarin fjögur ár staðið fyrir reglulegum námskeiðum um skjalavörslu. Til að meta hvernig til hefur tekist  stendur nú yfir viðhorfskönnun um námskeið safnsins. 



Drupal vefsíða: Emstrur