Þjóðskjalasafn Íslands
Hvers leitar þú? Heim


Skjalavarsla
Skjalaskrár
Heimildagrunnar
Sýningar - Fræðsla
Afhending skjala
Þjónusta

Um Þjóðskjalasafn
English Dansk

Eldri fréttir
2010.07.02
Námskeið um skjalavörslu 2010-2011
Veturinn 2010-2011 mun Þjóðskjalasafn Íslands halda námskeið um skjalavörslu. Tilgangur námskeiðanna er að stuðla að bættri skjalavörslu hjá opinberum aðilum og byggja þau á reglum og leiðbeiningarritum safnsins um skjalavörslu. Boðið verður upp á 12 námskeið um helstu þætti í skjalavörslu opinberra aðila. Að auki verður í boði námskeið fyrir starfsmenn einkafyrirtækja sem áhuga hafa að kynna og jafnvel tileinka sér vinnubrögð við skjalavörslu opinberra aðila.
Sjá nánari upplýsingar og yfirlit um námskeiðin 2010-2011.

2010.05.05
Námskeið fyrir einkaráðgjafa í skjalavörslu opinberra aðila
Þjóðskjalasafn Íslands heldur námskeið fyrir einkaráðgjafa í skjalavörslu opinberra aðila á Þjóðskjalasafni mánudaginn 17. maí n.k. Námskeiðið er ætlað starfsmönnum einkafyrirtækja sem taka að sér að veita ráð og sinna ákveðnum þáttum í skjalavörslu opinberra aðila.
Sjá nánar um námskeiðið.

2010.04.19
Birni Pálssyni þökkuð vel unnin störf
Við síðustu áramót lét Björn Pálsson héraðsskjalavörður í Héraðsskjalasafni Árnesinga á Selfossi af störfum eftir 19 ára gott og gifturíkt starf. Af því tilefni hélt Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður honum samsæti nýlega og færði honum gjafir sem þakkarvott fyrir starfið. Sjá myndir.

2010.02.17
„Ný“ teikning af Bessastöðum
Fyrir nokkru benti athugull safngestur starfsmönnum Þjóðskjalasafns á að í bréfum úr Gullbringusýslu væri teikning af Bessastaðastofu og nærliggjandi byggingu. Teikningin er í öskju sem ber safnnúmerið Gullbringu- og Kjósarsýsla II/7B. Bréf 1821-1822 (nú í ÞÍ. Teikningasafn. Skúffa 6, nr. 8). Ekkert af nærliggjandi bréfum í öskjunni virðast eiga við teikninguna, en hún mun trúlega vera frá þessum árum, enda keimlík kunnri teikningu eftir Björn Gunnlaugsson frá 1831, þótt ekki séu þær alveg eins.
Sjá nánar.

2010.02.15
Safnanótt á Þjóðskjalasafni
Lestrarsalur Þjóðskjalasafns var opinn á Safnanótt með fjölbreyttri dagskrá. Boðið var upp á tvo fyrirlestra og voru þeir vel sóttir. Rúmlega 200 gestir sótt safnið heim á Safnanótt. Sjá myndir.

2010.02.12
Safnanótt 2010
Þjóðskjalasafn Íslands tekur nú þátt í Safnanótt í fyrsta sinn. Dagskrá fer fram í lestrarsal safnsins á Laugavegi 162 og hefst klukkan 19:00. Þar verður hægt að skoða, fræðast og hlýða á bráðskemmtileg erindi um Hallgrím „litla“ Þorláksson og fyrsta íslenska raðmorðingjann.
Dagskrá Þjóðskjalasafns, Laugavegi 162, Reykjavík
Dagskrá Safnanætur.

2009.11.16
Menntamálaráðherra opnar manntal.is
Á norræna skjaladeginum, laugardaginn 14. nóvember 2009, opnaði Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands, www.manntal.is. Unnið hefur verið að skráningu manntala að meira eða minna leyti frá árinu 2003, en þó aðallega frá febrúar 2008. Sjá nánar.

2009.11.11
Norræni skjaladagurinn 2009
Næsta laugardag, 14. nóvember 2009, er norræni skjaladagurinn. Þjóðskjalasafn Íslands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og Héraðsskjalasafn Kópavogs bjóða til sameiginlegrar dagskrár í húsakynnum Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162 og víða um landið munu héraðsskjalasöfnin opna dyr sínar fyrir gestum. Sjá nánar á vef skjaladagsins.

2009.09.25
Kynningarfundur um reglur um rafræn opinber gögn og skil á þeim
Þjóðskjalasafn Íslands boðar til kynningarfundar fyrir skjalaverði í stofnunum á reglum safnsins um rafræn opinber gögn og skil á þeim sem tóku gildi 1. ágúst sl. Kynningarfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 30. september kl. 8:30-10:00 í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu.
Sjá nánar
.

2009.09.18
Endurbætur á lestrarsal
Miklar umbætur voru gerðar á lestrarsalnum í sumar. Afgreiðslurými breytt, gögnum á sjálfbeina fjölgað, hvíldarafdrep (kaffistofa) gesta lagfært, snyrtingar gerðar upp og rými á lestrarsal aukið. Nú er einnig búið að opna fyrir aðgang að dómabókargrunni Þjóðskjalasafnsins og komið þráðlaust netsamband á lestrarsalinn.

2009.09.16
Námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum
Námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum verður haldið í Þjóðskjalasafni Íslands 7. og 8. október næstkomandi. Námskeiðið er liður í aukinni þjónustu Þjóðskjalasafns við skjalaverði í stofnunum og fyrirhugað er að halda námskeiðið með reglulegu millibili. Nánari upplýsingar og skráningu er að finna hér.

2009.09.07
Reglur um rafræn opinber gögn og skil á þeim
Þjóðskjalasafn Íslands hefur gefið út Reglur um rafræn opinber gögn og skil á þeim. Reglurnar taka til allra aðila sem teljast skilaskyldir samkvæmt 5. gr. laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985 og gilda því bæði fyrir ríki og sveitarfélög. Reglurnar eru settar á grundvelli 4. gr. sömu laga og tóku gildi 1. ágúst 2009. Þær má nálgast hérna.

2009.07.08
Menntamálaráðherra heimsækir Þjóðskjalasafn
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra heimsótti Þjóðskjalasafn Íslands í gær ásamt aðstoðarmanni sínum, Sigtryggi Magnasyni. Á fundi með ráðherra voru helstu verkefni safnsins kynnt. Auk þess skoðaði ráðherra nokkur dæmi um skjöl í vörslu safnsins og kynnti sér húsakost þess. Sjá myndir frá heimsókninni.

2009.06.02
Þjóðskjalasafn hlaut gullmerki á frímerkjasýningu
Dagana 29. - 31. maí 2009 var haldin norræn frímerkjasýning, „NORDIA2009“, í Íþróttahúsi Hafnarfjarðar. Þjóðskjalasafn Íslands sýndi þar frímerki úr Hans Hals safninu (Kristján konungur IX) í heiðursdeild sýningarinnar í boði Landssambands íslenskra frímerkjasafnara og hlaut gullmerki fyrir framlagt sýningarefni.

2009.04.21
Þráðlaust netsamband á lestrarsal
Á lestrarsal Þjóðskjalasafns Íslands hefur nú verið opnaður aðgangur að þráðlausu netsambandi og geta gestir því tengst veraldarvefnum í gegnum fartölvur sínar. Í því sambandi má minna á að á vef Þjóðskjalasafns er m.a. aðgangur að þremur leitarbærum manntölum og skjalaskrá sem telur nú um 220.000 færslur og fer stækkandi.

2009.03.30
Safnahúsið 100 ára
Safnahúsið við Hverfisgötu, nú Þjóðmenningarhús, á aldarafmæli um þessar mundir og er þess minnst með ýmsum hætti. Þjóðskjalasafnið setur upp sýningu í húsinu á völdum skjölum úr fórum safnsins sem tengjast húsinu sjálfu og stjórnskipan Íslands. Lesa meira....

2009.03.09
Einkaskjalasafn Stefáns Jóhanns Stefánssonar afhent Þjóðskjalasafni
Þann 18. febrúar 2009 afhenti fjölskylda Stefáns Jóhanns Stefánssonar Þjóðskjalasafni Íslands einkaskjalasafn hans. Stefán Jóhann var formaður Alþýðuflokksins, forseti Alþýðusambandsins, forsætisráðherra og gegndi mörgum öðrum trúnaðarstörfum um ævina. Lesa meira....

2009.01.27
Reglur og leiðbeiningar um málalykla og skjalavistunaráætlanir
Þjóðskjalasafn Íslands hefur sett reglur um málalykla og skjalavistunaráætlanir. Reglurnar gilda fyrir afhendingarskylda aðila skv. 5. gr. laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands, að undanskyldum sveitarfélögum og stofnunum þeirra, en sérstakar reglur verða settar á næstu misserum fyrir þessa aðila. Reglurnar eru settar með tilvísun í 4. gr. laga um Þjóðskjalasafn Íslands.
Markmið reglnanna er að opinberar stofnanir og embætti fylgi ákveðnum grunnreglum um skjalavörslu í því augnamiði að tryggja varðveislu opinberra skjala og aðgengi að þeim. Reglunum fylgja leiðbeiningar ásamt fylgiskjölum, sem eiga að auðvelda starfsmönnum gerð skjalavistunaráætlana og málalykla.
Reglurnar má nálgast hér.

2008.12.12
Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs 2006-2007
Héraðsskjalasafn Kópavogs hefur gefið út fyrsta ársrit sitt. Efni þess eru skýrslur um starfsemi og sögu skjalasafnsins auk útgáfu skráa yfir skjöl í vörslu þess. Í ritinu eru greinar um listamanninn Wilhelm Ernst Beckmann og Kópavog á árunum 1681-1729 en þeirri grein fylgir útgáfa á stríðshjálparskýrslu Gullbringusýslu 1681 og kvikfjártalsskýrslu Seltjarnarneshrepps 1703. Einnig eru í ritinu útgefnar fundargerðabækur Framfarafélagsins Kópavogs 1945-1955 og skjöl úr sögu þess. Loks eru í ritinu fróðleiks- og leiðbeiningarkaflar um skjalavörslu sveitarfélaga. Ritið er 478 bls. prýtt rúmlega 60 myndum og er búið myndaskrá og ýtarlegu registri. Sjá nánar á vef Héraðsskjalasafns Kópavogs.

2008.12.02
Nýir vefir ríkisskjalasafnanna í Danmörku og Svíþjóð
Nýlega endurnýjuðu ríkisskjalasöfnin í Danmörku og Svíþjóð vefi sína. Með tilkomu þessara nýju vefja hefur aðgengi að skjölum og upplýsingum verið stórbætt og þjónusta aukin verulega.

2008.11.04
Norræni skjaladagurinn 2008
Næstkomandi laugardag, 8. nóvember 2008, er norræni skjaladagurinn. Þjóðskjalasafn Íslands og Borgarskjalasafn Reykjavíkur bjóða til sameiginlegrar dagskrár í húsakynnum Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162 og víða um landið munu héraðsskjalasöfnin opna dyr sínar fyrir gestum. Sjá nánar á vef skjaladagsins.

2008.11.03
Námskeið um ættfræðiheimildir
Þjóðskjalasafn Íslands hyggst bjóða upp á námskeið um ættfræðiheimildir í samstarfi við Ættfræðifélagið. Námskeiðið er í þremur hlutum og hefst laugardaginn 8. nóvember 2008, kl 14:00, á lestrarsal safnsins. Upplýsingar og skráning er í síma 590 3300. Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 og félagsmenn Ættfræðifélagsins njóta forgangs.

2008.09.29
Notkun tugstafakerfis við flokkun skjala
Fyrr á þessu ári spunnust umræður um notkun tugstafakerfis við flokkun skjala. Af því tilefni vísast hér til greinargerðar um tugstafakerfið, eins og það er notað í skjalavörslu, lesendum til glöggvunar.

2008.09.15
Breyting á lögum um Þjóðskjalasafn Íslands
Tímamót í sögu og starfi Þjóðskjalasafns Íslands urðu með breytingu á lögum um safnið þann 12. september sl. Þá var lögum breytt þannig að safninu er gert heimilt og kleift að taka við og varðveita rafræn skjöl til langs tíma. Aukið hlutverk safnsins í leiðsögn og eftirliti með afhendingarskyldum opinberum aðilum er einnig staðfest í lögunum. Safnið mun nú hefja undirbúning þessa nýja verkefnis. Sjá hér breytingu á lögum.

2008.06.18
Manntalið 1870 er komið á netið
Manntalið 1870 er komið á vef Þjóðskjalasafns Íslands í stafrænni gerð. Það er fyrsta manntal af tíu, sem lokið er í sérstöku átaksverkefni. Manntalið 1870 var unnið í Vestmannaeyjum. Á tveimur árum er stefnt að því að búa til stafrænar gerðir af 10 manntölum og setja á netið. Þetta eru manntöl frá árunum 1840, 1845, 1850, 1855, 1860, 1870, 1890, 1901, 1910 og 1920.
Lesa meira...

2008.05.21
Geymt en ekki gleymt
Fyrir nokkru var fjallað um það á opinberum vettvangi að gögn hefðu týnst úr fórum Þjóðskjalasafns Íslands, nánar tiltekið skjöl úr skjalasafni Rannsóknarlögreglu ríkisins (RLR) sem geymd væru í safninu. Þykir nauðsynlegt að ítreka að um er að ræða skjalasafn sem er í vörslu Þjóðskjalasafns (deponerað) en hefur ekki verið skilað til safnsins. Aðgangi að skjalasafninu er stýrt af embætti ríkislögreglustjóra (RLS).
Lesa meira...


2008.03.04
Annað námskeið í skráningu manntala
Dagana 28. - 29. febrúar 2008 var haldið námskeið númer tvö í skráningu manntala. Að þessu sinni sóttu námskeiðið nýráðnir starfsmenn Héraðsskjalasafns Skagfirðinga á Sauðárkróki og Héraðsskjalasafns Austfirðinga á Egilsstöðum ásamt héraðsskjalavörðum þessara safna. Fyrsta verkefni þeirra, þegar heim kemur, verður skráning manntalsins 1855, sem verður gerð eftir frumriti.
Lesa meira...


2008.02.06
Námskeið í skráningu manntala
Dagana 5. - 7. febrúar 2008 stendur yfir námskeið fyrir nýja starfsmenn Héraðsskjalasafns Vestmanneyja. Þar er þeim kennt að vinna við innslátt á manntölum Íslendinga sem síðar verða birt á netinu.
Lesa meira...


2007.12.11
Skráning sýsluskjalasafna á Húsavík
Þjóðskjalasafn Íslands hefur hafið endur- og grunnskráningu lítt eða óskráðra skjalasafna í samstarfi við Héraðsskjasafn Þingeyinga á Húsavík. Skráningarverkefnið er liður í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna niðurskurðar á þorskkvóta.
Lesa meira...


2007.11.29
Færeyski menntamálaráðherrann heimsækir Þjóðskjalasafn
Menntamálaráðherra Færeyja, Jógvan á Lækjuni, sem er í opinberri heimsókn á Íslandi, heimsótti Þjóðskjalasafn Íslands í dag ásamt fylgdarliði og fulltrúa frá menntamálaráðuneytinu.
Sjá myndir frá heimsókninni.

2007.11.26
Norskir skjalaverðir í Þjóðskjalasafni
Hópur skjalavarða frá Björgvin í Noregi heimsótti Þjóðskjalasafn s.l. föstudag og fékk kynningu á starfsemi safnsins og kynnti sér húsakynni og aðstöðu safnsins.
Sjá myndir frá heimsókninni.

2007.11.23
Fundur héraðsskjalasafna og Þjóðskjalasafns
Fundur héraðsskjalasafna og Þjóðskjalasafns fór fram í Þjóðskjalasafni dagana 22. og 23. nóvember 2007.
Lesa meira...
Sjá myndir frá fundunum.

2007.11.06
Tilraunaverkefni lokið
Tilraunaverkefni Þjóðskjalasafns Íslands og ríkisskattstjóraembættisins lauk formlega 6. nóvember s.l. með því að starfshópur skilaði af sér skýrslu um verkefnið. Skýrslan er aðgengileg hér.
Sjá mynd frá afhendingu skýrslunnar.

2007.08.20
Bréf til Jóns Sigurðssonar 1855-1875
Þjóðskjalasafn Íslands hefur gefið út ritið Jón Guðmundsson ritstjóri, Bréf til Jóns Sigurðssonar forseta, 1855-1875. Einar Laxness hefur búið bréfin til prentunar og ritar inngang og skýringar.
Lesa meira

2007.05.08
Nordatlanten og Troperne
Út er komin bókin Nordatlanten og Troperne. Forvaltningshistoriske kilder fra Færøerne, Grønland, Island og Tropekolonierne, sem ritstýrt er af Erik Nørr og Jesper Thomassen. Í henni er fjallað um stjórnsýsluheimildir frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og hitabeltisnýlendum Dana.
Lesa meira

2007.04.20
Nýtt frímerki í tilefni afmælis ÞÍ
Íslandspóstur gaf í dag út frímerki í tilefni 125 ára afmælis Þjóðskjalasafns Íslands. Verðgildi frímerkisins er 80 krónur. Hönnuður er Örn Smári Gíslason grafískur hönnuður.
Lesa meira
Tilkynning Íslandspósts

2007.04.16
Mikil ánægja með námskeið ÞÍ
Þjóðskjalasafn hefur undanfarið haldið námskeiðið „Opinber skjalavarsla í bráð og lengd“ fyrir þrjá hópa, einn hóp héraðsskjalavarða og tvo hópa skjalastjóra í opinberum fyrirtækjum og stofnunum. Alls sátu 62 þátttakendur þessi námskeið og var almenn ánægja í þeirra hópi með þau. Ekki verður um frekara námskeiðahald að ræða á næstunni, en stefnt er að því að taka upp þráðinn í haust.

2007.04.03
Þjóðskjalasafn Íslands 125 ára
Safnið var stofnað með bréfi Hilmars Finsen landshöfðingja 3. apríl 1882 sem landsskjalasafn, en árið 1915 var nafni þessi breytt í Þjóðskjalasafn Íslands og um leið urðu breytingar á hlutverki þess. Í tilefni dagsins verður haldin ráðstefna um starfsemi og vettvang þjóðskjalasafna sem hefst í Þjóðmenningarhúsi kl 14:00 síðdegis.
Sjá dagskrá ráðstefnunnar

2007.04.02
Bréf frá Jóni Sigurðssyni afhent Þjóðskjalasafni
Í dag afhenti Rakel Olsen, forstjóri í Stykkishólmi, Þjóðskjalasafni nokkur bréf Jóns Sigurðssonar til Boga Thorarensens sem fundust nýlega í Frúarhúsi í Stykkishólmi. Sjaldgæft er að frumbréf frá miðri nítjándu öld finnist og er afar ánægjulegt að þau hafi ratað í vörslu Þjóðskjalasafnsins. Bréfin eru afhent í tilefni af 125 ára afmæli safnsins.
Sjá myndir frá afhendingu bréfanna.

2007.04.01
Stjórnarnefnd Alþjóðaskjalaráðsins fundar á Íslandi
Stjórn Alþjóðaskjalaráðsins, heimssamtaka skjalasafna, heldur fund á Hótel Sögu dagana 28. mars til 2. apríl. Fundur stjórnarnefndarinnar er að þessu sinni tengdur 125 ára afmæli Þjóðskjalasafns Íslands sem er 3. apríl 2007.
Sjá nánar

2007.03.26
Nýtt námskeið Þjóðskjalasafns
Nýtt námskeið Þjóðskjalasafns, „Opinber skjalavarsla í bráð og lengd“, var haldið í fyrsta sinn föstudaginn 23. mars sl. fyrir starfsmenn héraðsskjalasafna og starfsmenn Þjóðskjalasafns.
Sjá myndir frá námskeiðinu.

2006.12.19
Nemendur úr MH í heimsókn
Dagana 5. og 6. febrúar 2007 komu hressir og áhugasamir nemendur úr Menntaskólanum við Hamrahlíð í heimsókn í Þjóðskjalasafn, í fylgd með kennurunum Guðmundi Arnlaugssyni og Pálma Magnússyni, þar sem þau hlýddu á kynningu á starfsemi og viðfangsefnum safnsins og skoðuðu skjöl.
Sjá myndir frá heimsókninni.

2006.12.19
Afhent gögn frá Flatey á Breiðafirði
Ólafur Steinþórsson hefur afhent Þjóðskjalasafni tvær bækur: Kirkjustól Flateyjarkirkju á Breiðafirði 1865-1961 í arkarbroti og Æfir Flateyjarpresta frá 1617 til 1880, ritaðar í litla stílabók.
Ólafur er alinn upp í Flatey og fer þangað á hverju sumri. Hann hefur ritað minningar sínar þaðan í bókinni Ferð til fortíðar sem kom út árið 1995.
Sjá myndir af bókunum.

2006.11.27
Máldagar Ólafs biskups Rögnvaldssonar um Hólabiskupsdæmi
Í tilefni af níu hundruð ára afmæli Hólastóls á þessu ári birtir Þjóðskjalasafn myndir af Máldögum Ólafs biskups Rögnvaldssonar um Hólabiskupsdæmi. Sjá nánar....

2006.10.26
Þjóðskjalasafn birtir gögn um símhleranir
Þjóðskjalasafn Íslands hefur ákveðið að birta í heild sinni skjöl um símhleranir á árunum 1949 – 1968, sem eru í vörslu safnsins, en hefur afmáð persónugreinanlegar upplýsingar um þá sem hlerað var hjá í samræmi við þau persónuverndarsjónarmið sem felast í 71. grein stjórnarskrárinnar. Sjá nánar....

2006.10.23
Ákvörðun þjóðskjalavarðar 20. október 2006
Þjóðskjalavörður hefur tekið ákvörðun um aðgang Kjartans Ólafssonar, fyrrverandi ritstjóra, að gögnum um símahleranir á kaldastríðsárum. Ákvörðunina má lesa hérna.

2006.10.17
Úrskurður menntamálaráðherra 16. október 2006
Þjóðskjalasafni hefur borist úrskurður menntamálaráðherra í máli Kjartans Ólafssonar, fyrrverandi alþingismanns, um aðgang að gögnum um símahleranir. Í úrskurðinum er óskað eftir því að fyrri ákvörðun safnsins verði endurskoðuð. Verið er að fara yfir málið í Þjóðskjalasafni og er niðurstöðu að vænta innan fárra daga.

2006.09.22
Aðgangur að trúnaðarskjölum um símahleranir. Athugasemdir Þjóðskjalasafns
Þjóðskjalasafn Íslands hefur sent frá sér athugasemdir vegna umfjöllunar um aðgang að trúnaðarskjölum um símhleranir á dögum kalda stríðsins sem varðveitt eru í Þjóðskjalasafni. Athugasemdirnar má lesa í heild sinni hérna.

2006.08.21
Undirskriftir Litháa afhentar Þjóðskjalasafni
Laugardaginn 19. ágúst 2006 afhenti forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, Þjóðskjalasafni Íslands fimm bækur með undirskriftum um 240 þúsund Litháa sem sýna Íslendingum þar með þakklæti sitt vegna stuðnings við Litháa í frelsisbaráttu þeirra.
Sjá myndir.

2006.06.26
Sjaldséð sjón á viðgerðarstofunni
Meðfylgjandi myndir frá viðgerðarstofu Þjóðskjalasafns sýna þegar verið var að þurrka skjöl (sum músétin) sem afhent voru nýlega frá Norðurfirði á Ströndum. Sem betur fer er þetta ekki algeng sjón.
Sjá myndir.

2006.06.26
Tæknihópur í heimsókn
Tæknihópur um langtímavörslu rafrænna gagna hins opinbera kom í heimsókn í dag og fékk kynningu á þeim aðferðum sem Þjóðskjalasafn hyggst nota við vörslu þeirra rafrænu gagna sem skilaskyld eru til safnsins.
Sjá mynd.

2006.05.11
Stofnanasamningur við SFR
Í dag var undirritaður stofnanasamningur milli Þjóðskjalasafns Íslands og SFR. Samninginn undirrituðu Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður og Bjarni Þórðarson fjármálastjóri fyrir hönd Þjóðskjalasafns og Embla Valberg fyrir hönd SFR.

2006.05.02
Norræn námsstefna um rafræna skjalavörslu
Nýlokið er námsstefnu norrænna sérfræðinga á sviði rafrænnar skjalavörslu í boði Þjóðskjalasafns. Námsstefan var haldin á Skógum 24.-26. apríl og gekk vel að mati þátttakenda. Á næstunni verða erindi, glærur og samantekir settar á vefinn, tengdar dagskránni.
Sjá mynd.

2006.04.26
Steintúnsætt gefin Þjóðskjalasafni
Guðlaugur Gíslason stýrimaður frá Steinstúni í Árneshreppi, Strandasýslu, hefur fært Þjóðskjalasafni Íslands að gjöf Steinstúnsætt sem hann hefur tekið saman og er niðjatal hjónanna Guðlaugs Jónssonar og Ingibjargar Jóhannsdóttur, sem bjuggu á Steinstúni á fyrri hluta 20. aldar. Þjóðskjalasafn kann Guðlaugi bestu þakkir fyrir gjöfina.

2006.04.01
Ferðamálaskóli Íslands í fræðsluferð
Nemendur Ferðamálaskóla Íslands komu í fræðsluferð á Þjóðskjalasafn 1. apríl síðastlíðinn.
Sjá mynd.

2006.03.22
Enn fjölgar skjalaskrám á netinu
Í dag bættust 23 skjalasöfn prófasta í skjalaskrársafnið á netinu og er þá alls 31 skjalasafn aðgengilegt á vef safnsins.
Sjá skjalaskrár á vefnum...

2006.02.24
Skjalaskrám á netinu fjölgar
Þjóðskjalasafn vinnur að því að gera skjalaskrár aðgengilegar á vef safnsins. Nýlega bættust skrár um skjalasöfn fjögurra skjalamyndara í safnið, þ.e. Byggingastofnun landbúnaðarins, Fósturskóli Íslands, Þroskaþjálfaskóli Íslands og Sakadómur Reykjavíkur.
Sjá skjalaskrár á vefnum...

2006.02.15
Fornleifafræðinemar í heimsókn
Í dag heimsóttu um 30 nemendur Háskóla Íslands Þjóðskjalasafn. Þetta voru nemendur Más Jónssonar prófessors í námskeiðinu „Rýni ritheimilda“.
Sjá myndir.

2006.01.19
Hrafn Sveinbjarnarson kvaddur
Á starfsmannafundi í dag var Hrafn Sveinbjarnarson, skjalavörður, kvaddur af starfsfélögum sínum í Þjóðskjalasafni og færði Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður, honum gjöf af því tilefni um leið og hann þakkaði Hrafni fyrir vel unnin störf og árnaði honum heilla í nýju starfi sem héraðsskjalavörður í Kópavogi.
Sjá mynd.

2005.12.20
Rit um manntalið 1703 er komið út
Þjóðskjalasafn Íslands hefur ásamt Hagstofu Íslands gefið út ritið Manntalið 1703 þrjú hundruð ára/Greinar í tilefni afmælis í ritstjórn Eiríks G. Guðmundssonar og Ólafar Garðarsdóttur. Í ritinu eru greinar um manntalið 1703 sem byggðar eru á fyrirlestrum sem haldnir voru á málþingi um manntalið 15. nóvember 2003.
Sjá mynd af kápu ritsins.

2005.12.01
Heimsókn frá Dalbraut
Hópur frá Unglingadeildinni á Dalbraut í Reykjavík kom í heimsókn í Þjóðskjalasafn á fullveldisdaginn.

2005.11.12
Norræni skjaladagurinn
Norræni skjaladagurinn er í dag. Í tilefni dagsins hefur Þjóðskjalasafn sett upp sýningu á lestrarsal sem verður opin í dag frá kl 11:00 til kl 14:00 og eftir það á venjulegum opnunartíma lestrarsalar til febrúarloka 2006.
Sjá vef skjaladagsins

2005.10.24
Kvennadagur í Þjóðskjalasafni
Konur í hópi starfsmanna Þjóðskjalasafnsins voru kvaddar með virktum af þjóðskjalaverði í viðurvist annars karlpenings úr starfsliðinu áður en þær héldu til fundarhalda fylktu liði.
sjá meira

2005.10.20
Menntamálaráðherra heimsækir Þjóðskjalasafn
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, heimsótti Þjóðskjalasafn í dag ásamt aðstoðarmanni sínum, Steingrími Sigurgeirssyni, og ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins, Guðmundi Árnasyni.
sjá meira

2005.10.13
Nemendur í skjalastjórn í heimsókn
Nemendur í skjalastjórn við Háskóla Íslands kynntu sér starfsemi Þjóðskjalasafns. Þeir fræddust um hlutverk og verkefni safnsins. Auk þess voru þeim sýnd skjöl frá ýmsum tímum og skjalageymslur. Þjónustuaðstaðan var jafnframt skoðuð.
Sjá myndir.

2005.09.23
Sagnfræðinemar í heimsókn
Nemendur á fyrsta ári í sagnfræði í árlegri kynnisferð í Þjóðskjalasafni. Það er fastur liður í aðferðafræðinámi sagnfræðinema við Háskóla Íslands að sækja Þjóðskjalasafn heim og kynnast af eigin raun starfsemi þess og safnkosti.
Sjá myndir.

2005.07.06
Fulltrúar menntamálaráðuneytis í heimsókn
Þrír starfsmenn menntamálaráðuneytisins heimsóttu Þjóðskjalasafn i kynningarskyni þann 6. júlí undir forystu Ragnheiðar Þórarinsdóttur.
sjá meira

2005.07.05
Fjármálaráðherra heimsækir Þjóðskjalasafn
Geir Haarde fjármálaráðherra heimsótti Þjóðskjalasafn í dag ásamt aðstoðarmanni sínum, Ragnheiði Elínu Árnadóttur.
sjá meira

2005.05.27
Skýrsla um skjalavörslu ríkisstofnana komin út
Þjóðskjalasafn hefur gefið út skýrsluna Rafræn skjala- og gagnavarsla ríkisstofnana. Könnun Þjóðskjalasafns á skjalavörslu ríkisstofnana árið 2004. Skýrslunni verður dreift til þátttakenda og annarra skjalamyndara ríkisins á næstu dögum, auk þess sem efni hennar verður kynnt þingmönnum og sveitarstjórnum. Einnig er hægt að nálgast skýrsluna á PDF-formi hér.

2005.04.20
Ferðamálaskólinn í heimsókn
Nemendur úr Ferðamálaskólanum sóttu Þjóðskjalasafn Íslands heim í dag og hlýddu á kynningu á starfsemi safnsins og safnkosti, sem þau Björk Ingimundardóttir og Eiríkur G. Guðmundsson sáu um.
Sjá myndir.

2005.04.20
Málarameistarar afhenda skjöl
Stjórn Málarameistarafélagsins afhenti Þjóðskjalasafni Íslands skjalasafn Málarameistarafélags Reykjavíkur til varðveislu með samningi sem undirritaður var í dag ...
sjá meira

2005.04.15
Kynningarfundur í Þjóðskjalasafni
Þjóðskjalasafn Íslands hefur boðað til kynningarfundar um langtímavörslu rafrænna skjala opinberra aðila hinn 19. apríl næstkomandi ... sjá meira

2005.04.11
Gestur frá Noregi í heimsókn
Í byrjun mars kom hingað Ellen Marie Fodstad frá Statsarkivet í Oslo og starfaði hér í einn mánuð. Ellen kynnti sér starfsemi Þjóðskjalasafns og skrifaði einnig grein um aðferðir norrænu þjóð- og ríkisskjalasafnanna við að koma safnkosti yfir á stafrænt form ... sjá meira

2005.02.07
Nordisk Arkivnyt gefið út á Íslandi
Tímaritið Nordisk Arkivnyt er gefið út af þjóð- og ríkisskjalasöfnunum á Norðurlöndunum. Í því birtast greinar um málefni ríkisskjalasafnanna og ýmis konar fréttir úr faginu. Tímaritinu verður dreift til ríkisskjalasafna Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands ... sjá meira

2005.01.19
Landafræðinemar í heimsókn
Nemendur í landafræði við Háskóla Íslands komu ásamt kennara sínum í heimsókn og kynntust safninu og skjölum sem einkum snerta landa- og lýðfræði.
Sjá myndir.

2004.12.14
Verðlaunaafhending
Í dag voru afhent verðlaun fyrir þátttöku í getraun norræna skjaladagsins. Ólafur Gunnarsson í Reykjavík tók við bók um íslensku bílaöldina sem voru önnur verðlaun.
Hafliði Ingason, sem fékk fjórðu verðlaun, gat ekki verið viðstaddur vegna veikinda barns. Hinir þrír verðlaunahafarnir taka við sínum verðlaunum í heimabyggð, sjá nánar um verðlaunin.
Sjá myndir.

2004.12.01
Námskeið um skjalaáætlun
Námskeið um gerð skjalaáætlunar var haldið í Þjóðskalasafninu 30. nóv. 2004. Frumkvæði að námskeiði um þetta efni kom frá hópi skjalastjóra sem starfandi eru í hinum ýmsu stofnunum ríkisins. Fjallað var um gerð, markmið og meginatriði skjalaáætlunar, eða skjalavistunaráætlunar eða skjalastjórnunaráætlunar eins og hún kallast einnig. Gerð var grein fyrir grunneiningum skjalakerfis og helstu spurningum sem hafa þarf í huga við gerð skjalaáætlunar. Að endingu var fjallað um mikilvæg atriði og ákvarðanir sem hafa ber í huga þegar kemur að rafrænni skjalavörslu. Góðar og líflegar umræður spunnust um hin ýmsu atriði, bæði þau sem reidd voru fram á námskeiðinu og þau sem þátttakendur báru fram og tengdust starfi þeirra og þeim raunveruleika sem þar er við að fást. Umsjón með námskeiðinu hafði Kristjana Kristinsdóttir sviðsstjóri skjalavörslusviðs Þjóðskjalasafns. Fleiri námskeið munu verða haldin hjá Þjóðskjalasafninu á komandi ári.

2004.11.13
Norræni skjaladagurinn 2004
Norræni skjaladagurinn er í dag. Þema dagsins er: „Ár í skjölum - Árið 1974“. Þjóðskjalasafn er með sýningu á skjölum sem tengjast þema dagsins, þ.e. árinu 1974 á lestrarsal safnsins. Í dag verður þar opið kl 11-15, en sýningin mun standa til áramóta og verða opin á venjulegum opnunartíma lestrarsalarins. Sjá nánar á vef skjaladagsins.

2004.10.18
Heimsókn tölvunarfræðinema frá Háskóla Reykjavíkur
Mánudaginn 18. október 2004 komu u.þ.b. 40 nemendur í tölvunarfræði við Háskóla Reykjavíkur í heimsókn. Þeir fengu kynningu á skjalavörslu hins opinbera, einkum hvað varðar langtímavörslu rafrænna gagna. Auk þess skoðuðu þeir sýningu á úrvali skjala frá síðustu öldum.

2004.10.14
Heimsókn nemenda í skjalastjórn frá Háskóla Íslands
Nemendur í skjalastjórn úr Háskóla Íslands komu í heimsókn í Þjóðskjalasafn fimmtudaginn 14. október og skoðuðu m.a. skjalageymslur safnsins. Myndir frá heimsókninni

2004.10.04
Norrænir sérfræðingar funda um upplýsingatækni
Sérfræðingar ríkisskjalasafna Norðurlanda á sviði upplýsingatækni funda í Þjóðmenningarhúsinu 4. og 5. október. Fundarefni er einkum undirbúningur ráðstefnu sem haldin verður í Osló í maí 2005. Eitt meginefna þeirrar ráðstefnu verður staðlar á sviði rafrænnar skjalavörslu og notkun þeirra í reglum er tengjast langtímavörslu tölvugagna.

2004.09.28
Samstarfssamningur Þjóðskjalasafns og Háskóla Íslands
Samstarfssamningur milli Þjóðskjalasafns og Háskóla Íslands var undirritaður í Háskóla Íslands í dag kl 11:00.
Samningurinn felur í sér ráðningu lektors í skjalfræði og skjalavörslu við sagnfræðiskor Háskóla Íslands og miðast kennsla hans annars vegar við að veita stúdentum handleiðslu og leiðbeiningar í rannsóknartengdu framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) og hins vegar mun lektorinn kenna námskeið í undirstöðuatriðum kennilegrar skjalfræði og skjalavörslu.
Sjá fréttatilkynningu Háskóla Íslands

2004.09.23
Sagnfræðinemar í heimsókn
Fyrsta árs sagnfræðinemar við Háskóla Íslands komu í sína árlegu heimsókn í Þjóðskjalasafn 20. sept. síðastliðinn. Um það bil 60 sagnfræðiemar komu í fylgd Eggerts Þórs Bernharðssonar aðjunkts. Þeir hlýddu á kynningu á starfsemi safnsins, sáu sýnishorn skjala o.fl.
Sjá myndir

2004.09.09
Sumarvinnu við Manntalið 1901 og Kvikfjártal 1703 lokið
Í sumar hafa nemendur við Háskóla Íslands unnið að tveimur verkefnum á vegum Þjóðskjalasafns Íslands. Mannfræðinemarnir Katrín Guðmundsdóttir og Kolbrún Indriðadóttir unnu við innslátt úr Manntalinu 1901. Verkefnið var unnið í samvinnu við Ólöfu Garðarsdóttur sagnfræðing. Þá unnu sagnfræðinemarnir Gunnar Örn Hannesson og Gunnar Marel Hinriksson við innslátt úr Kvikfjártali 1703, en það verkefni var styrkt af Nýsköpunarsjóði.
Sjá myndir

2004.08.05
Könnun um rafræna skjalavörslu lokið
Könnun Þjóðskjalasafns um rafræna skjalavörslu í ríkisstofnunum er lokið. Könnunin var send til 350 aðila og bárust svör frá 254 eða 72,5%. Verið er að vinna úr niðurstöðunum.

2004.05.14
Könnun um rafræna skjalavörslu
Þjóðskjalasafn Íslands hefur það lögbundna hlutverk að taka við og varðveita skjalasöfn allra opinberra aðila, setja þeim reglur um skjalavörslu og leiðbeina þeim almennt á því sviði.
Þjóðskjalasafn hefur sent út spurningalista til ríkisstofnana til að kanna hjá þeim umfang og eðli rafrænnar skjalavörslu og annarrar rafrænnar gagnavinnslu. Könnunin er rafræn og fengu svarendur senda slóð á veffang þar sem hægt er að svara spurningunum. IMG Gallup sér um framkvæmd þessarar könnunar fyrir Þjóðskjalasafn.

2004.01.28
Skjöl Íslensku stjórnardeildarinnar öll komin heim
Í apríl 2003 var undirritaður samningur milli ríkisstjórna Íslands og Danmerkur um að Danir afhentu Íslendingum til varðveislu skjöl Íslensku stjórnardeildarinnar í Kaupmannahöfn frá árunum 1848-1904. Sjá nánar....

2003.11.15
Málþing um Manntalið 1703
Þjóðskjalasafn Íslands og Hagstofa Íslands standa að málþingi í tilefni 300 ára afmælis manntalsins 1703 í húsakynnum Hagstofu Íslands, Borgartúni 21a, 4. hæð, í dag klukkan 13.00-17.00. Samstarfsaðilar eru Sagnfræðingafélagið, Sagnfræðistofnun og Félag um 18. aldar fræði. Sjá dagskrá málþingsins.

2003.11.08
Norræni skjaladagurinn 2003
Norræni skjaladagurinn er á laugardaginn 8. nóvember. Þjóðskjalasafn verður með opið hús og sérstaka dagskrá milli kl. 11 og 15. Sjá nánar á sérstökum vef helguðum þessum degi www.skjaladagur.is.

2003.08.06
Norrænt skjalavarðaþing
Dagana 7. og 8. ágúst n.k. verður tuttugasta þing norrænna skjalavarða haldið á Hótel Nordica í Reykjavík. Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson mun setja þingið, en það sækja rúmlega 360 skjalaverðir frá Norðurlöndum.
Í tilefni þingsins opnar Þjóðskjalasafn Íslands tvær sýningar. Önnur er helguð því að 300 ár eru liðin frá því að manntal var fyrst tekið á Íslandi og er það fyrsta mannatal svo kunnugt sé sem tekur til allra landsmanna, karla, kvenna og barna. Þá er, í tilefni þess að Danir hafa nú sem kunnugt er afhent Íslendingum skjalasafn Stjórnarráðs Íslands frá 1848-1904, opnuð sýning á þremur stjórnarskrám Íslands.
Jafnframt mun Þjóðskjalsafn opna nýjan gagnagrunn, Heimildir um íslenska sögu frá siðaskiptum til heimastjórnar, sem verður aðgengilegur á vef safnsins. Þá koma út ný kynningarrit um Þjóðskjalasafn Íslands á íslensku, ensku og dönsku.
Sjá nánar...

2003.04.09
Stjórnarskráin 1874 alkomin heim
Forsætisráðherra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen, afhendir Davíð Oddssyni, forsætisráðherra Íslands, frumrit stjórnarskrárinnar frá 1874, ásamt fleiri skjölum sem tengjast Íslandi, við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu.
Sjá nánar...

2002.11.04
Norræni skjaladagurinn 2002
Norræni skjaladagurinn er 9. nóvember 2002. Af því tilefni hefur Þjóðskjalasafnið opnað vef um skjaladaginn. Þar má finna efni frá Þjóðskjalasafni, Borgarskjalasafni og tíu héraðsskjalasöfnum víðsvegar um landið, svo og tengil á samnorræna vefsíðu skjaladagsins.

2002.10.30
Einokunarverslun á Íslandi í 400 ár
Í tilefni af 120 ára afmæli Þjóðskjalasafns Íslands á þessu ári var fyrr á árinu opnuð sýning á skjölum er varða einokunarverslunina á Íslandi, en í ár eru liðin 400 ár frá því að henni var komið á hér á landi. Vefútgáfa þeirrar sýningar, Einokunarverslunin á Íslandi 1602-1787, var opnuð í dag.

2002.10.11
Skólavef Þjóðskjalasafns Íslands hleypt af stokkunum
Skólavefur Þjóðskjalasafns Íslands formlega opnaður kl 14:30. Vefurinn er samstarfsverkefni Þjóðskjalasafns og Fjölbrautaskólans við Ármúla, sem styrkt var af þróunarsjóði framhaldsskóla. Sjá myndir frá opnuninni.

2002.10.11
Hvað viltu vita?
Vefútgáfa sýningarinnar Hvað viltu vita birt á vef Þjóðskjalasafns. Sýningin var sett upp á lestrarsal safnsins fyrr á árinu og er henni ætlað að varpa ljósi á heimildir um einstaklinga.