Námskeið um frágang og skráningu pappírsskjalasafna
2012-03-30 09:00
2012-03-30 11:30
Europe/London
| Heiti námskeiðs | Námskeið um frágang og skráningu pappírsskjalasafna |
| Leiðbeinendur | Helga Jóna Eiríksdóttir, Þorgerður Hanna Hannesdóttir |
| Dagsetning | 30. mars 2012 |
| Tími | 09:00-11:30 |
| Staðsetning | Þjóðskjalasafn Íslands, Laugavegi 162, 3. hæð (gengið inn úr porti) |
| Fjöldi | 15 |
| Námskeiðsgjald | 4.000 kr |
| Fyrir hverja | Skjalastjóra, umsjónarmenn skjalasafna og aðra starfsmenn skjalavörslu hjá opinberum stofnum ríkisins og sveitarfélögum sem eru ekki aðilar að héraðsskjalasafni (Árneshreppur, Bæjarhreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Garðabær, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Helgafellssveit, Kaldrananeshreppur, Kjósarhreppur, Reykhólahreppur, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Seltjarnarneskaupstaður, Snæfellsbær, Strandabyggð, Stykkishólmsbær, Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð). |
| Námskeiðslýsing | Á námskeiðinu verður farið yfir reglur Þjóðskjalasafns Íslands um frágang og skráningu pappírsskjalasafna og leiðbeiningar. Leiðbeint um gerð geymsluskrár og umbúðir sem skal nota undir skjöl. Í kjölfar námskeiðsins verður boðið upp á eftirfylgni þar sem þátttakendur geta borið frágang og skráningu undir sérfræðinga Þjóðskjalasafns og fengið ráðleggingar og aðstoð. |
| Lesefni | Lesefni eru reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands og er aðgengilegt á vef safnsins: Glærur fyrir námskeiðið verða sendar með tölvupósti til þátttakenda skömmu áður en námskeið hefst. |
| Skráning | Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið. |
