Skip to Content

Námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum

2012-04-13 09:00
2012-04-13 15:30
Europe/London
Heiti námskeiðs Almennt námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum
Leiðbeinendur Helga Jóna Eiríksdóttir, Júlía Pálmadóttir Sighvats, Kristjana Kristinsdóttir, Njörður Sigurðsson, Unnur Birna Karlsdóttir, Þorgerður Hanna Hannesdóttir
Dagsetning 13. apríl 2012
Tími 09:00-11:30 og 13:00-15:30
Staðsetning Þjóðskjalasafn Íslands, Laugavegi 162, 3. hæð (gengið inn úr porti)
Fjöldi 15
Námskeiðsgjald 8.000 kr
Fyrir hverja Skjalastjóra, umsjónarmenn skjalasafna og aðra starfsmenn skjalavörslu hjá opinberum stofnum ríkisins og sveitarfélögum sem eru ekki aðilar að héraðsskjalasafni (Árneshreppur, Bæjarhreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Garðabær, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Helgafellssveit, Kaldrananeshreppur, Kjósarhreppur, Reykhólahreppur, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Seltjarnarneskaupstaður, Snæfellsbær, Strandabyggð, Stykkishólmsbær, Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð).
Námskeiðslýsing Á námskeiðinu er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu opinberra stofnana. Þá verður farið í helstu grunnþætti í skjalavörslu opinberra stofnana, þ.e. skjalavistunaráætlun, grisjun, málalykil og málaskrá, frágang og skráningu pappírsskjalasafna, umbúðir utan um skjöl og reglur um rafræn opinber gögn og skil á þeim.

Í kjölfar námskeiðsins verður boðið upp á eftirfylgni fyrir þátttakendur þar sem hægt er að bera sérstök skjalavörsluverkefni sem unnið er að undir sérfræðinga Þjóðskjalasafns og fá ráðleggingar og aðstoð.  
Lesefni Lesefni eru reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands og er aðgengilegt á vef safnsins:
Glærur fyrir námskeiðið verða sendar með tölvupósti til þátttakenda skömmu áður en námskeið hefst.
Skráning Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið.

 



Drupal vefsíða: Emstrur